Stjórnvöld hafa tilkynnt um hertar aðgerðir vegna COVID-19 sem hafa áhrif á skóla, frístund og félagsmiðstöð.
Nemendur grunnskólans eru komnir í páskaleyfi frá og með fimmtudeginum 25. mars. Starfsmenn skólans munu nýta tímann fram að helgi til að undirbúa kennslu að loknu páskaleyfi miðað við þær takmarkanir sem gætu verið í gildi þá.
Lokað er í frístund og félagsmiðstöð samhliða grunnskóla.
Leikskólar eru áfram opnir en þar gilda áfram reglur um grímuskyldu og 2 metra fjarlægðarmörk. Óviðkomandi aðilum er ekki heimilt að koma inn í skólabyggingarnar.
Nánari upplýsingar verða birtar þegar þær hafa borist frá stjórnvöldum.