Þróunarverkefni

Þróun er mikilvægur hluti af skólastarfinu og hefur skólinn verið í tveimur stórum þróunarverkefnum undanfarin ár.

Stærsta þróunarverkefnið, er Kveikjum neistann.

Kveikjum neistann hófst haustið 2021. Markmið verkefnisins er að bæta líðan og árangur nemenda og efla áhugahvöt þeirra en grunnþáttur í því er að allir nemendur nái færni í lestri. Nemendur fá áskoranir miðað við færni til að kveikja áhuga á náminu. Verkefnið er langtíma rannsóknarverkefni en stefnt er að því að fylgja einum árgangi eftir í tíu ár og meta árangurinn sem gerir þetta að stærstu menntarannsókn sem gerð hefur verið hér á landi. Frekari upplýsingar um verkefnið má finna með því að smella, HÉR.

 

Spjaldtölvuinnleiðing: Skólinn hóf spjaldtölvuinnleiðingu árið 2020 og í maí 2022 náðum við þeim áfanga að allir nemendur hefðu sitt tæki til afnota í skólanum. Frekari upplýsingar um innleiðinguna má finna með því að smella, HÉR.

Vestmannaeyjabær veitir þróunarstyrk á hverju ári og margir kennarar í skólunum hafa fengið styrk. Frekari upplýsingar um þau fjölmörgu spennandi verkefni má finna með því að smella HÉR.