Þemadagar, námsmatsdagar og skóladagur Hamarsskóla

Hamarsskóli

 

Þemadagar eru: þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag.

Þessa daga fellur hefðbundið skólastarf niður og nemendur vinna að ákveðnu þema í sínum árgangi. Í þetta sinn eru allir árgangar að vinna að Disney þema. Þemadagarnir eru skertir skóladagar og lýkur þá skóla fyrr en vanalega. Skóla lýkur milli 12:00 og 12:20.

Athugið að íþróttatímar halda sér. 

Fimmtudaginn 26. febrúar er skóladagur Hamarsskóla og verður hann á milli 16:30 og 18:30. Þar verður afrakstur þemadaga til sýnis, kaffisala hjá 4. bekk og fleira skemmtilegt.

Víkin leikskóladeild verður einnig opin og býður tilvonandi nemendur sérstaklega velkomna.

Barnaskóli

 

Miðstig: 

Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag verða námsmatsdagar á miðstigi en um er að ræða skerta skóladaga þar sem skólinn hefst kl. 08:20 eins og venjulega en kennslu lýkur á hádegi og fara nemendur heim að loknum hádegisverði. Íþróttatímar og lotur fyrir hádegi halda sér samkvæmt stundatöflu, en allar íþróttir og lotur sem eru á dagskrá eftir hádegi falla niður þessa þrjá daga

Unglingastig:

Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag verða próf kl. 9:00-11:00. Nemendur mæta í próf og mega fara heim að því loknu en mæta í íþróttir, akademíu, þjálfun og val utan skóla s.s. æfingar, tónlistarskóla. … eftir hádegi samkvæmt stundaskrá.

Valfög innan skólans falla niður þessa daga og það verður ekki boðið upp á hádegismat fyrir unglingastig.

Nemendur mega mæta fyrr þessa daga til að undirbúa sig fyrir próf.

Föstudagurinn 27. febrúar byrjar á prófi klukkan 8:20-10:20, nemendur fara svo í nesti og sitja hefðbundinn skóladag eftir klukkan 10:40.