Skólaslit

Skólaslit eru þriðjudaginn 9. júní.

Skólaslitin verða á Stakkó, þar mun 1.-4.bekkur ásamt Víkinni sýna dans og skólalúðrasveitin mun taka nokkur lög.

Nemendur mæta í skólann kl. 10:00 og rölta með umsjónarkennara á Stakkó. Áætlum að byrja um 10:20/10:30 á Stakkó.

Foreldrar og aðrir gestir eru velkomnir og vonumst við til að flestir sjái sér fært að mæta.

Nemendur sem eru skráðir á frístund fara upp í skóla að skólaslitum loknum, foreldrar sjá um að koma nemendum á frístund.

Aðrir nemendur fara heim eftir Stakkó.

Annars þökkum við fyrir gott samstarf í vetur og njótið sumarsins