Skóladagur Barnaskólans

Skóladagur Barnaskólans framundan – gleði og samvera.
Miðvikudaginn 6. maí, á milli klukkan 16:30 og 18:30, bjóðum við nemendur og fjölskyldur þeirra hjartanlega velkomna á skóladaginn.
Yngri nemendur sýna verkin sín og um allan skólann verður boðið upp á fjölbreytta afþreyingu svo sem leiki, sköpun og þrautir.
9. bekkur sér um kaffisölu. Hún er mikilvægur liður í fjáröflun þeirra fyrir skólaferðalagið í 10. bekk. Þar verða vöfflur, skúffukökur og möffins til sölu.
Við hvetjum alla til að fjölmenna, efla skólasamfélagið og skapa dýrmætar minningar.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll í hátíðarskapi þann 6. maí.
Kær kveðja,
nemendur og starfsfólk GRV Barnaskóla