Í gær þann 14. apríl var lokakeppni Raddarinnar haldin í fallegu veðri í Vík í Mýrdal. Grunnskóli Vestmannaeyja átti þrjá keppendur sem stóðu sig með mikilli prýði en Caritas Rós Tinnudóttir nemandi í GRV gerði sér lítið fyrir og sigraði keppnina. Í öðru sæti var Hrafnkell Frosti Ómarsson frá Hellu og í þriðja sæti var Embla Bríet Einarsdóttir frá Hvolsvelli. Við í GRV eru ótrúlega stolt af þessum stúlkum en þess má geta að ferðalagið frá Eyjum til Víkur (báðar leiðir) tók um 12 klukkutíma. Lokakeppnin 2027 verður haldin á Hvolsvelli.



