Samræmdum prófum í 9. bekk aflýst í ár.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að aflýsa hefðbundnum samræmdum prófum í ensku og stærðfræði.
Þessi ákvörðun byggir fyrst og fremst á hagsmunum nemenda og sjónarmiðum skólasamfélagsins.
Að vel athuguðu máli telur Menntamálastofnun ekki öruggt að rafræn fyrirlögn prófanna muni ganga snurðulaust fyrir sig, enda hafi þjónustuaðili prófakerfisins ekki brugðist við aðstæðum með fullnægjandi hætti.
Er þessi ákvörðun fyrst og fremst tekin með hagsmuni nemenda og sjónarmið skólasamfélagsins í huga.
Nemendum verður hins vegar gefið val um að taka könnunarpróf í viðkomandi greinum á tímabilinu 17. mars - 30. apríl nk.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/03/11/Samraemdum-konnunarprofum-aflyst/?fbclid=IwAR3fKVt6xHIQ2WTtZ3e8oPqW3E9oLB5yKl34geJ-2ZwXmd-iVgRCQp-snUs