Litlu jólin og jólakveðja

Litlu jólin verða mánudaginn 19. desember frá kl. 16:00-18:00.

Nemendur mæta prúðbúnir og eiga notalega stund í stofum auk þess að dansa í kringum jólatréð. Jólasveinn mun kíkja í heimsókn í Hamarsskóla.

Nemendur mega koma með drykk og snarl. 

Jólaleyfi nemenda hefst 20. desember og skóli hefst á ný þann 4. janúar samkvæmt stundatöflu. 

Starfsfólk GRV óskar ykkur Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.