Göngum í skólann og keppni um gullskóinn hefst

Grunnskóli Vestmannaeyja hefur ákveðið, eins og áður, að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Embætti landlæknis, Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann var sett í skólanum á föstudaginn 4. september en hefst svo hjá okkur mánudaginn 7. september. Átakið stendur yfir í fjórar vikur.

Göngum í skólann í okkar skóla

Hjá okkur í GRV keppa bekkirnir á yngsta- og miðstigi um Gullskóinn sem þykir alltaf mjög eftirsóknarverður. Kennari skráir hversu margir ganga í skólann eða hluta leiðarinnar fyrstu tvær vikur átaksins og sá bekkur þar sem flestir ganga í skólann hlýtur Gullskóinn.

Vonandi gengur þetta vel hjá okkur. Verum endilega opin fyrir þessu og jákvæð og nýtum haustið til að vekja athygli á hreyfingu og öryggi barnanna okkar á leiðinni í skólann.

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.gongumiskolann.is