Grunnskóli Vestmannaeyja hefur ákveðið, eins og áður, að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Embætti landlæknis, Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann hefst í skólanum á morgun miðvikudaginn 4. september og lýkur formlega miðvikudaginn 9. október.
Þetta er í átjánda sinn sem verkefnið er haldið hér á landi og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt. Meginmarkmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar, að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.gongumiskolann.is
Göngum í skólann í okkar skóla
Skólinn hefur nú þegar verið skráður til leiks og við hvetjum alla til þess að taka þátt t.d. með því að ganga með ykkar barni/börnum í skólann þetta tímabil. Við viljum einnig hvetja ykkur kæru foreldrar/forráðamenn til þess að nýta ykkur verkefnið og þá umræðu sem skapast þennan mánuðinn til þess að ræða umferðaröryggi við börnin ykkar og fara öruggustu leiðina í skólann.
Hjá okkur í GRV keppa bekkirnir á yngsta- og miðstigi um Gullskóinn sem þykir alltaf mjög eftirsóknarverður. Kennari skráir hversu margir ganga í skólann eða hluta leiðarinnar fyrstu tvær vikur átaksins og sá bekkur þar sem flestir ganga í skólann hlýtur Gullskóinn.
Vonandi gengur þetta vel hjá okkur. Verum endilega opin fyrir þessu og jákvæð og nýtum haustið til að vekja athygli á hreyfingu og öryggi barnanna okkar á leiðinni í skólann.