Frístund opnar 16. ágúst næstkomandi.

Þann 16. ágúst næstkomandi opnar frístundaverið í Hamarsskólanum. Frístund er starfrækt eftir
hádegi alla virka skóla daga frá 12:30-16:30 fyrir börn í 1-4 bekk. Jafnframt verður boðið upp á
heilsdagsvistun á starfsdögum og í vetrarfríi frá 07:45 – 16:30.
Dagana 16-23 ágúst verður heilsdagsvistun á frístund. Umsóknarblað fyrir vistun þessa daga
verður send út á foreldra sem eiga barn skráð á frístund í byrjun ágúst. Það þarf að alltaf að skrá
sig á heilsdagsdagana. 24. ágúst opnar síðan frístund á sínum venjulega tíma 12:30-16:30.
Megin markmið frístundar er að bjóða upp á innihaldsríkt frístundar- og tómstundastarf í
barnvænu og skapandi umhverfi þar sem starfshættir einkennast af frjálsum leik og vali.
Opið er fyrir umsóknir og eru foreldrar beðnir um að sækja um sem allra fyrst, áður en skólarnir
byrja. Forráðamenn sem eiga börn sem nýttu sér frístund á síðasta skólaári þurfa einnig að skila
inn umsókn ef þeir ætla að halda áfram að nýta sér þjónustu Frístundar.
Hægt er að sækja um vistun í gegnum íbúagáttina sem má finna á heimasíðu
Vestmannaeyjabæjar https://www.vestmannaeyjar.is/thatttaka/fundargerdir/ibuagatt-1

Við hlökkum til að taka á móti ykkur.
Anton Örn Björnsson
anton@vestmannaeyjar.is
s: 488-2240