Þriðjudag og miðvikudag, 17. og 18. mars eru uppbrotsdagar hjá 1.-7.bekk.
Þá munu verða fjölgreindaleikar og skóla lýkur kl. 11:30.
Athugið að ekki er hádegismatur þessa daga nema fyrir þá nemendur sem eru á Frístund. Ekki er þörf á að taka skólatösku eða íþróttadót, lítill bakpoki með nesti er nóg.
Vinsamlegast látið vita ef vitað er að ykkar barn verður ekki í skóla þessa daga.
Leikarnir byggja á kenningum Howards Gardners um fjölgreindirnar þar sem gengið er út frá því að allir séu góðir í einhverju og að allir eigi að fá tækifæri til að fást við það sem þeir eru sterkir í. Með fjölgreindaleikum er verið að búa til skemmtilegan viðburð þar sem nemendur og starfsfólk eiga góða daga við leik og skemmtun.