Breytingar á núverandi skóladagatali

Gerðar hafa verið smávægilegar breytingar á núverandi skóladagatali.

Starfsdagur 24. apríl færist til 7. júní og þar með færast skólaslit fram um einn dag og eru 6. júní í stað 7. júní.

Foreldrafundadagur færist um viku og verður 1. febrúar í stað 25. janúar og skóladagur Hamarsskóla verður fimmtudaginn 26. janúar, í lok þemaviku tengt 50 ára gosafmæli.

Nýtt dagatal er komið undir flipann skóladagatal hér að ofan.