|
Höfundur Eva Káradóttir
|
|
föstudagur, 17 febrúar 2012 |
|
Öskudagur
Miðvikudaginn 22. febrúar á öskudag ætlum við að gera okkur glaðan dag í GRV. Nemendur og starfsfólk skólans eru hvött til að mæta í búningum í skólann þann dag. Í tilefni dagsins verður blandað saman leik og kennslu. Að loknum hádegisverði geta nemendur farið í heimsóknir í verslanir og fyrirtæki bæjarins milli kl. 13:00 og 15:00 þar sem kátra söngvara bíður glaðningur. Hamingjan er undir okkur sjálfum komin |
|
Síđast uppfćrt ( föstudagur, 17 febrúar 2012 )
|
|
|
Höfundur Eva Káradóttir
|
|
föstudagur, 17 febrúar 2012 |
|
Konudagurinn haldinn hátíðlegur í Barnaskólanum
Á fimmtudaginn vorum við með tilbreytingu hér í skólanum í tilefni konudagsins sem er á sunnudaginn. Stúlkur voru hvattar til að mæta í sparifötum og spariskóm í skólann og var gaman að sjá hve margar voru í flottum skóm. Öllum nemendur í skólanum stóð til boða að kaupa sér snúð og kókómjólk í félagsaðstöðunni okkar. Fleiri myndir eru í myndasafninu okkar hér til hliðar. |
|
Síđast uppfćrt ( föstudagur, 17 febrúar 2012 )
|
|
|
Höfundur Eva Káradóttir
|
|
mánudagur, 13 febrúar 2012 |
Í byrjun árs lærðu nemendur 6. bekkjar um sólkerfið okkar. Í famhaldi af því var ákveðið að nemendur myndu búa til sólkerfið til þess að hengja upp í sínar heimastofur og gekk sú vinna alveg ljómandi vel. Minni reikistjörnurnar voru unnar með blöðrum og pappír í pappamassa og svo málaðar í réttum litum. Stærri reikistjörnurnar eru pappaljósakrónur sem nemendur máluðu. Á myndinni eru nemendur 6. SAÓ ánægðir með útkomuna hjá sér. |
|
Síđast uppfćrt ( mánudagur, 13 febrúar 2012 )
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 1 - 4 af 196 |